Haha ég er komin aftur!
Ég var svo gjörsamlega búin að steingleyma lykilorðinu mínu og var búin að gefa upp alla von um að komast nokkurn tíma inn á þessa síðu aftur. Svo fór ég í fartölvuna mína og þar er lykilorðið geymt og vola ég er komin inn.
Nú er næstum því ár síðan ég bloggaði síðast. Margt hefur gerst á þeim tíma.
Ég er búin að missa 6-7 kíló síðan í haust og er hrikalega ánægð með mig. Og hvernig fór ég að? Ég hef alltaf hreyft mig en viðurkenni að mataræðið hefur ekki alltaf verið "under control". Hélt alltaf að ég væri svo heilsusamleg en komst svo að því með því að halda matardagbók að ég var að borða of sjaldan, borða of mikið og nammidagurinn teygðist oft yfir 3 daga 
Í stuttu máli tók ég á mataræðinu. Borða reglulega, 5x yfir daginn, passa matarskammtana, hef einn nammidag í viku og er almennt meðvituð um hvað ég er að láta ofan í mig án þess að vera heltekin af þessu.
Svo fór ég á Boot camp námskeið og ómæ hvað það er skemmtilegt og árangurinn lætur ekki á sér standa ef maður mætir á æfingarar og tekur á því.
Það sem er framundan á nýju ári er að halda áfram að æfa vel. Svo er takmarkið að missa ca 4 kíló í viðbót og fara svo í viðhaldið.
Meira síðar 
Adios Narnía